Skilað og skipt

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörur sem eru keyptar í netverslun er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu, inneignarnótu eða skipta í aðra stærð eða vöru. Endurgreiðslur eru gerðar á sama hátt og greiðsla var gerð. Allir miðar verða að vera á vörunni og varan ónotuð.

Vörur sem eru keyptar í verslun er hægt að skila inna 14 daga og fá inneignarnótu eða skipta í aðra stærð eða vöru. Muna eftir kvittun, verðmiði þarf að vera á vörunni og varan ónotuð og laus við utanaðkomandi lykt.

Útsöluvöru fæst ekki skilað en hægt er að skipta útsöluvöru fyrir aðra útsöluvöru. Eftir að útsölu lýkur fæst útsöluvöru ekki skipt.

Gjafamiða eða skilamiða er ekki hægt að fá á útsöluvörur og nærfatnað.

Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi.

Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema við eigi. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru. Einnig er hægt að koma í verslun og skila og skipta.

Skil á nærfatnaði, sokkabuxum og sokkum er undanskilið þessari reglu en skv. tilmælum heilbrigðiseftirlitsins má ekki skila né skipta nærbuxum, sokkabuxum og sokkum þar sem innsiglið er rofið.